Brynja
Verslunin Brynja
Brynja var stofnuð á haustmánuðum árið 1919 og er því elsta starfandi járnvöruverslun landsins. Vöruval er geysigott og breiddin mikil. Við leggjum metnað okkar í góða þjónustu og að bjóða góða vöru á sanngjörnu verði. Stór hluti er eigin innflutningur og byggir á áratuga löngum samböndum.
Hvað er til hjá okkur?
Við eigum til mikið úrval af hvers kyns járnvöru og vönduðum handverkfærum. Einnig trésmíðavélar og rafmagnshandverkfæri, málningarvörur, baðherbergisvörur, norskt smíðajárn, lím og þéttiefni, slöngur og slöngutengi, hurðarhúna, hurðaskrár, húsgagnaskrár og hótelskrár, sylinderlykla, standlykla og pípulykla. Handverksbækur eigum við alla jafna í ágætu úrvali. Að auki smíðum við nær allar gerðir af hús- og bíl- og húsgagnalyklum.
Brynja er lykilverslun við Laugaveginn.