Viltu forvitnast eitthvað um okkur?
BMC er lítið og krúttlegt umhverfisvænt fjölskyldufyrirtæki (yngsti starfsmaðurinn er 8. mánaða) sem selur vandaðar og sérvaldar pre owned merkjavörur á netinu.
Við veljum vörurnar af fagmennsku, búum yfir mikilli reynslu og sterku tengslaneti og eigum í samstarfi við flotta einstaklinga bæði hérlendis og í London sem luma á földum fjársjóðum, oft flíkur og hluti sem erfitt er að finna!
Við fókusum á sérvaldar vandaðar og vel með farnar vörur, ónotaðar eða mjög lítið notaðar og eingöngu hluti sem í okkar huga eru góðir gullmolar.
Hjá okkur er hægt að eignast einstakar gersemar og við bjóðum upp á fjölbreytt úrval svo að sérhver viðskiptavinur ætti að geta fundið eitthvað einstakt sem hæfir bæði persónulegum smekk og stíl hvers og eins og skiptir okkur miklu máli að verðin séu sanngjörn.
Við seljum klassískar flíkur sem sum merki eru þekkt fyrir að framleiða og einnig hluti sem eru fágætir og erfitt er að finna.
Við bjóðum upp á alls konar flott merki (sum fást ekki hérlendis) eins og by Malene Birger, Celine, Paul Smith, Zadic & Voltaire, Max Mara, Tommy Hilfiger, Celine, Sand, Day by Birger Mikkelsen, Rag & Bone, Kristensen Du Nord, Kenzo, Hartford, Filippa K ofl …
Þannig geta okkar viðskiptavinir fundið flík sem hentar hvort sem er í daglegu amstri, í vinnuna og tölum nú ekki um ef á að skella sér í betri fötin og mæta á viðburð eða gera sér dagamun.