Te & Kaffi Laugavegi 27

Laugavegur 27, 101 Reykjavík

Te & Kaffi er fjölskyldufyrirtæki stofnað 1984 af hjónunum Sigmundi Dýrfjörð og Berglindi Guðbrandsdóttur sem komu innblásin heim frá búsetu árum í Svíþjóð með þann draum að opna verslun með sælkerkaffi og laufte. Þau opnuðu fyrst litla verslun á Barónsstíg með fersku sælkerakaffi og ótrúlegu magni af lauftei og bættu svo við kaffibar þegar þau fluttu síðar á Laugaveg. Fyrstu 20 árin einbeittu þau sér að því að reka sérverslanir og kaffihús ásamt sölu á veitingamarkaði en með fjárfestinu í öflugri framleiðslutækjum árið 2004 var hægt að herja á innreið á matvörumarkaðinn af einvherri alvöru. Á 20 ára afmælinu var farið í endurmörkun umbúða, sérverslana og kaffihúsa, útlit samræmt og nýtt myndmerki kynnt.

Á síðasta áratug hefur vörumerkið þróast með sífelldum nýjungum og vöruþróun auk þess sem við rekum níu glæsileg kaffihús. Te & Kaffi er stærsta vörumerkið á neytendavörumarkaði og leggjum við mikið uppúr umhverfismálum en með sjálfbærni að leiðarljósi hafa stórar breytingar orðið í kaffibrennslunni og umbúðamálum.

Í dag starfa í kringum 100 manns hjá fyrirtækinu í ólíkum og skemmtilegum verkefnum. Til að daglegur rekstur fjölmargra kaffihúsa og sala á ólíka markaði geti gengið sem best fyrir sig þá þarf gott skipulag og frábært starfsfólk á allar starfsstöðvar. Framleiðsla á kaffi spilar veigamesta þáttinn í starfsemi fyrirtækisins. Með aukinni vitund neytenda um hágæðakaffi hafa sóknarfæri Te & Kaffi aukist til muna á síðustu árum.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík