Apotek Kitchen + Bar

Austurstræti 16, 101 Reykjavík

Um Apotek Kitchen + Bar

Apotek kitchen +bar er staðsettur á einu fallegasta horni Reykjavíkur í Austurstræti 16.

Við erum “casual/smart” staður þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar í líflegri stemningu og flottu umhverfi.

Matseðillinn er skemmtileg blanda af íslensku og evrópsku eldhúsi með funheitu argentísku grilli. Fjöldi smárétta er á matseðlinum sem mælt er sérstaklega með að gestir smakki og njóti saman.

Á Apotekinu er lifandi kokteilbar þar sem verðlaunaðir „apótekarar“ hrista saman spennandi kokteila – við allra hæfi – örvandi, róandi og jafnvel verkjastillandi.

Hönnun staðarins var í höndum Leifs Welding & Brynhildar Guðlaugsdóttur. Útgangspunkturinn var að halda heiðri hússins á lofti og gera byggingunni og sögu hennar hátt undir höfði. En á sama tíma að skapa nútímalegt, skemmtilegt og afslappað andrúmsloft. Langstærstur hluti húsgagna og innréttinga voru einnig hannaðir af tvíeykinu og smíðaðir á Íslandi.

Eldhúsið

Matreiðslumeistararnir Carlos Gimenez ræður ríkjum í eldhúsi Apoteksins ásamt öflugu liði fagmanna.

Carlos Gimenez

Carlos er fæddur og uppalinn í Buenos Aires í Argentínu og lauk námi við einn virtasta matreiðsluskóla Suður-Ameríku. Hann hefur starfaði á fjölda veitingahúsa m.a. í Argentínu, Úrúgvæ, Danmörku og á Spáni á hinu margrómaða El Bulli veitingahúsi undir stjórn hins þekkta matreiðslumeistara Ferran Adria. Carlos er mikið náttúrubarn og hans ástríða er að matreiða nýstárlega og skapandi rétti úr fersku íslensku hráefni.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.