
Fröken Reykjavík Kitchen & Bar er líflegur og stílhreinn staður þar sem góð stemning, bragðgóður matur og fallegt umhverfi mætast. Veitingastaðurinn er staðsettur á Hótel Reykjavík Sögu og býður upp á nútímalega evrópska matargerð þar sem fersk og staðbundin hráefni eru sett fram á skapandi og skemmtilegan hátt.
Opið eldhús gefur staðnum líf og leyfir gestum að fylgjast með kokkunum að störfum, barinn er iðandi af stemningu og hentar jafnt fyrir léttan drykk sem lengri kvöldstund, vetrargarðurinn er bjartur og notalegur og vínherbergið býður upp á góða drykki í afslöppuðu andrúmslofti. Dökkir gráir og bláir litatónar, hlýleg lýsing og stílhreinar innréttingar skapa umgjörð þar sem auðvelt er að slaka á, hlæja og njóta augnabliksins.
Fröken Reykjavík er ákjósanlegur staður fyrir hádegismat, kvöldverð eða notalega stund við góðan drykk – hvort sem þú ert að kíkja inn í hversdagslegri stemningu eða fagna einhverju sérstöku.