Íslenskir dagar verða í miðborginni þriðjudaginn 14.júní til laugardagsins 18.júní. EM og Þjóðhátíðardagurinn marka tilefni þessa og eru rekstraraðilar hvattir til að skreyta verslanir sínar og glugga eftir megni í þjóðlegum stíl og skarta myndum af forsetum, fánum og skjaldarmerkinu.Fánaborgum verður komið upp og ýmsir hafa sýnt því áhuga að mála sjálfan Laugaveginn í fánalitunum.