Verslunin Kraum , Aðalstræti 10, mun í samvinnu við íslenska tónlistarútgáfur opna sérstaka verslun með eingöngu íslenskri tónlist – ÍSLENSKIR TÓNAR -.
Verslunin verður í „Suðurstofunni“, en þar er álitið að Jón Sigurðsson forseti hafi dvalið í Íslandsferðum sínum, hjá bróður sínum Jens Sigurðssyni, sem á þeim tíma bjó í húsinu að Aðalstræti 10.
Markmiðið er að selja það besta sem í boði er á hverjum tíma og í starfsmannahópinn hafa bæst tónlistarmenntaðir menn, sem munu vinna að þessu markmiði með okkur.
FIMMTUDAGINN 17.OKTÓBER KL. 17:17 er hin formlega opnun og verður KRAUM opið til kl. 22:00. HljómsveitinSpaðar munu spila við þetta tækifæri ásamt Kristjáni Hrannari trúbadúr, Forever friends og fleiri skemmtilegar uppákomur verða þennan dag.