Ekta spænskur hádegisverður

🇪🇸 Nýr hádegisseðill á La barceloneta

Hinn einstaki og ástsæli kokkur, Pedro hefur rúmlega 40 ára reynslu og á því auðvelt með að töfra fram heimakæra og hefðbundna spænska rétti. Hingað til hefur starfsfólk La Barceloneta aðeins fengið það einstaka tækifæri að njóta góðs af þessum ljúffengu réttum en nú verður breyting á því. 🤌🏻

Við kynnum með stolti nýjan hádegisseðil á La Barceloneta mun breytast vikulega og innihalda þessa skemmtilegu og gómsætu rétti, rétt eins og á heimahögum hans Pedros.

Endilega kíkið við og smakkið huggulegan og bragðgóðan spænskan hádegisverð, einstakt bragð í hverjum rétti!

🤌🏻 Frá 6. nóvember
📍 Templarasund 3, 101
🔗 www.labarceloneta.is

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík