Margþætt afstaða til fjölgunar ferðamanna

Almennt séð eru Íslendingar allánægðir með fjölgun ferðamanna á landinu þar sem u m 45% segjast vera ánægð með hana. Á meðan segjast aðeins slétt 16% vera óánægð
með fjölgunina en hátt í 40% falla á milli o g svara í meðallagi. Ánægja með fjölgun ferðamanna er meiri meðal eldra fólks en yngra auk þess sem a ð ánægjan eykst með
lengri skólagöngu og hærri tekjum. Þ á var marktækur munur á ánægju milli kjósenda stjórnmálaflokka. Þannig eru kjósendur Viðreisnar og Bjartrar framtíðar mun
ánægðari með fjölgunina en kjósendur annarra flokka, en kjósendur Framsóknarflokksins o g Vinstri hreyfingarinnar –græns framboðs síst ánægðir.Spurt var u m hvort a ð svarendur væru hlynntir eða andvígir því a ð komið verði á aðgangsstýringu þannig a ð ákveðinn fjöldi ferðamanna fái a ð koma til landsins á hverju
ári. Um 47% svarenda segjast vera hlynnt því á meðan á billinu 29-30% segjast vera andvíg. Konur eru hlynntari takmörkun en karlar o g munur sást á milli kjósenda
flokkanna þarsem kjósendur Framsóknarflokksins eru til dæmis hlynntastir aðgangsstýringu.
Þ á var athugað hversu miklar eða litlar áhyggjur svarendur hefðu a f ákveðnum málum með tilliti til aukins fjölda ferðamanna, en spurt var u m vegakerfi landsins, náttúru,
skorti á leiguhúsnæði, stærð flugvallarins o g fjölgun láglaunastarfa. Helstu niðurstöður eru þær a ð töluverður meirihluti svarenda hefur áhyggjur a f vegakerfi landsins,
náttúru og skorti á leiguhúsnæði eða á bilinu 81% til 87% en aðeins rúmlega helmingur a f fjölgun láglaunastarfa eða 51%-52% en fæstir hafa áhyggjur a f stærð flugvallarins,
eða aðeins rúmlega 30%.
Síðast en ekki síst var spurt u m afstöðu til komugjalds til landsins. Spurt var hvort svarendur væru hlynntir eða andvígir 1.000 kr. komugjaldi í hvert sinn sem þeir ferðast
u m Keflavíkurflugvöll til a ð byggja upp innviði í ferðaþjónustu. Hátt í 50% segjast vera hlynnt komugjaldi á meðan u m 35% segjast andvíg því. Því hærri aldur, lengri
skólaganga o gmeiri tekjur þeim mun hlynntari verða menn slíku komugjaldi.
Svarendur þessarar könnunar, 847 manns, eru ú r Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu.
Svarendur eru a f báðum kynjum, alls staðar a ð a f landinu o g á aldrinum 18-75 ára. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs o g búsetu samkvæmt Þjóðskrá. Könnunin fór
fram dagana 2 7.mars til 3. apríl 2017.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Maskínu:www.maskina.i s o g hjá Þóru Ásgeirsdóttur í síma 896-4427 eða hjá [email protected].Screen Shot 2017-04-11 at 09.26.40

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík