„Í áliti nefndar um stefnumörkun í hvalveiðimálum, sem skipuð var af fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, kemur fram að meirihluti hennar telji ljóst að umfang hvalaskoðunar og þjóðhagslegt mikilvægi hennar hafi aukist á undanförnum árum og mikilvægt sé að umgjörð hvalaskoðunar og hvalveiða sé með þeim hætti að ásættanlegt teljist fyrir báðar atvinnugreinar,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Nefndin lagði til að griðasvæðið yrði stækkað þannig að miðað væri við beina línu frá Garðskagavita að Arnarstapa. Ákvörðun ráðherra gekk þó skemur til að fara bil beggja og kemur því ákvörðun um minnkun griðasvæðisins nú ferðaþjónustunni í opna skjöldu, enda hafa engar rannsóknir sýnt að hvalaskoðun hafi áhrif á hrefnuveiðar.SAF krefjast þess að hvalaskoðunarsvæðið við Faxaflóa verði nú þegar fært til fyrra horfs.