Berjaya Reykjavik Marina Hotel

Mýrargata 2, 101 Reykjavík

Eina hótelið í heimi þar sem hægt er að snerta skip í slipp.  Reykjavík Marina er litríkt hótel við Reykjavíkurhöfn með einstakan karakter þar sem gaman  er að vera. Frumleg íslensk nútímahönnun í bland við gamla muni úr slippnum einkenna hótelið og herbergi þitt, sem hefur þægindin í fyrirrúmi, en er einnig skreytt á einstakan, heimilislegan hátt. Skemmtilegar stofur eru tilvaldar fyrir óhefðbundna fundi, viðburði og partý.

Með hringiðu slippsins beint fyrir utan og gróskumikinn Grandagarð steinsnar frá nýtur þú dýrindis drykkja og dásemdar rétta á fæðingarstað kokteilmenningar Reykjavíkur, Slippbarnum.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.