Blúshátíð í Reykjavík hefst laugardaginn 28. mars, með blúsdegi á Skólavörðustíg. Allri götunni verðu breytt í göngugötu og lokað fyrir bílaumferð frá kl. 12:00
Boðið verður upp á svínarif, bacon, pylsur og blúsaðar uppákomur kl. 14 – 17. Fornbílaklúbburinn Krúseranir verður með bílasýningu og síðan verður blúsað af innlifun á stígnum. Allir eru velkomnir og hvattir til að mæta og njóta!