Miðborgin Reykjavík er markaðsfélag rekstraraðila í miðborginni. Félagsmenn eru yfir 100 talsins og standa þeir saman að ýmsum viðburðum í samstarfi við Reykjavíkurborg og fleiri aðila.
Tilgangur
Vera markaðsfélag fyrir hagaðila miðborginnar í Reykjavík sem vilja skapa jákvæða upplifun og efla atvinnurekstur, verslun og þjónustu og störf á svæðinu.
Efla jákvæða ímynd, ásýnd og aðdráttarafl miðborgar Reykjavíkur fyrir völdum markhópum. Stuðla að og móta framtíðarsýn um miðborg Reykjavíkur sem staðar til þess að njóta, starfa og eiga viðskipti. Tryggja gott upplýsingaflæði milli félagsmanna og Reykjavíkurborgar.
Við bjóðum velkomna alla rekstraraðila í miðborginni. Ef þú vilt ganga til liðs við Miðborgin Reykjavík – Markaðsfélag, geturðu skráð þig með því að smella á hnappinn hér að neðan.