Opnunarhóf sýningarinnar „Af sömu rótum“
í Listasmiðju Slippbarsins
miðvikudaginn 17. júlí kl. 17
Listakonurnar Guðlaug Helga og Kristjana Unnur Valdimarsdætur og systurdóttir þeirra, Víbekka Sól Andradóttir, halda sameiginlega sýningu „Af sömu rótum“ í Listasmiðju Slippbarsins.
Ein vinnur með vatnsliti, önnur með akrýlliti og þriðja með olíuliti. Áhugaverð og skemmtileg sýn á verk listakvenna sem tengdar eru fjölskylduböndum.
Sýningin stendur yfir til 31. júlí.