Vínberið

Laugavegur 43, 101 Reykjavík

Verslunin Vínberið hefur verið starfrækt á Laugavegi 43 frá árinu 1976. Upphaflega var verslunin matvöruverslun en árið 1995 var henni breyt í sælkeraverslun sem sérhæfir sig í súkkulaði.

Verslunin hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu en hún var stofnuð af Loga Helgasyni kaupmanni sem áður hafði starfað í verslun Silla & Valda. Árið 2016 tóku sonur Loga og tengdadótir við rekstrinum.

Mikil áhersla hefur verið lögð á breitt vöruúrval þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í dag eru til fjölmörgar tegundir af konfekti, súkkulaðiplötum, sælgæti og öllu því sem hugurinn girnist hverju sinni og er stöðugt verið að taka inn nýjar vörur og ný vörumerki.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.