Vínstúkan Tíu sopar

Laugavegur 27, 101 Reykjavík

Við erum vínbar  með allskonar vín. Sérstaklega höfum við gaman af náttúruvínum, en erum algerlega fordómalaus. Ölll vín velkomin og jafnrétthá á Vínstúkunni og við erum fyrst og fremst á höttunum eftir gæðum.Við vinnum eingöngu með smáframleiðendum og fjölskyldufyrirtækum og sneiðum framhjá meginstaumsvíni. Vínseðillinn telur u.þ.b. 200 titla og er lifandi skjal sem tekur einhverjum breytingum í hverri viku, hverjum degi jafnvel! Það er best að kíkja bara við og skoða úrvalið.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.