Fyrirhugað er að tyrfa hluta Ingólfstorgs í sumar og koma þar fyrir sólbekkjum og risaskjá líkt og á síðasta sumri, en það þótti gefast með eindæmum vel.
Mannlífið var þar í blóma allt sumarið og virtust bæði innlendir og erlendir gestir kunna einstaklega vel við sig á torgi landnámsmannsins í þeim sumarbúningi sem það var fært í.