Framundan er Langur laugardagur , 1.febrúar, með tilheyrandi stemningu í miðborginni og lengdum opnunartíma.
Útsölur eru víða enn í gangi og mikill fjöldi erlendra gesta gistir hótel borgarinnar og verður þeirra víða vart. Spáð er á níunda hundrað þúsund gesta á þessu ári. Á næstu 5 árum má gera ráð fyrir að straumur erlendra ferðamanna til Íslands verði farinn að nálgast tvær milljónir.