17. júní 2026 í miðborginni

🇮🇸Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður boðið upp á fjölbreytta og veglega dagskrá. Skemmtidagskrá verður í Hljómskálagarði og á Klambratúni og ætti engum að leiðast.

🏵️Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli kl. 11:00 en henni verður sjónvarpað og útvarpað á RÚV.

Fjallkonan flytur ávarp en ávallt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til á hátíðarathöfninni.

Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans.

🥳Klukkan 13:00 leiða skátar glæsilega skrúðgöngu (https://www.facebook.com/events/1382743067013472) frá Hallgrímskirkju að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarði. Um leið og skrúðgangan kemur á hátíðarsvæðið um klukkan 13:45 hefst skemmtidagskráin í Hljómskálagarðinum. Hátíðarsvæðið verður stútfullt af fjölbreyttri skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

🎢Skemmtidagskráin á Klambratúni (https://www.facebook.com/events/993348943241256) hefst klukkan 13:00. Dans Brynju Péturs verður með danssýningu, Besti vinur minn Súpermann kemur á svæðið, plötusnúðar sjá um tónlistina og matarvagnar verða á staðnum fyrir svanga þjóðhátíðargesti.

Það er ókeypis aðgangur á alla dagskrárliði og í tæki og engum ætti að leiðast.

Komdu og njóttu í miðorginni, fjöldi veitingastaða og verslana um alla borg.

(https://www.facebook.com/events/2128564544375332)

Allar upplýsingar má nálgast 17juni.is

🌟Gleðilega hátíð!

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.