Ljósin á Oslóartrénu verða tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli sunnudaginn 29. nóvember kl. 16, fyrsta sunnudag í aðventu. Tónlist, söngur, tröll og jólasveinar setja svip á Austurvöll og öll eru velkomin.
Kynnir er Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona og dagskráin er túlkuð á táknmáli.
Tréð er gjöf frá Oslóarborg og var fellt í Heiðmörk fyrr í mánuðinum. Það er rúmlega 12 metra hátt sitkagreni, skreytt 20.000 ljósum, 120 gylltum jólakúlum og jólastjörnu á toppnum.
Verslanir og veitingastaðir miðborgarinnar taka vel á móti gestum fyrir og eftir athöfnina. Kynntu þér jólin í miðborginni.
Heimild: Reykjavíkurborg.