Jólin í miðborginni – þetta er í boði fram að jólum

Miðborgin er komin í jólabúning. Jólakötturinn glóir á Lækjartorgi, jólamarkaðurinn við Austurvöll er opinn, Jólaportið í Kolaportinu iðar af lífi um helgar og veitingastaðirnir eru byrjaðir með jólaseðlana.

Hér er það helsta sem er í boði fram að jólum.


Jólakötturinn á Lækjartorgi

Fimm metra hár, 6.500 ljós og rauð augu sem fylgjast með þeim sem eiga enga nýja flík. Jólakötturinn stendur á Lækjartorgi fram á þrettándann og er einn mest myndaði staður borgarinnar á aðventunni.

Jólakötturinn á Lækjartorgi

Jólamarkaðurinn við Austurvöll

Opinn allar helgar í desember og alla daga 18.–23. desember. Handverk, hönnun, heitt súkkulaði, jólasveinar og tónlist í skjóli Oslóartrésins.

Ljósin á trénu verða tendruð sunnudaginn 29. nóvember kl. 16 – sjá dagskrá.

Jólamarkaðurinn við Austurvöll

Jólaportið í Kolaportinu

Jólamarkaður Kolaportsins við höfnina er opinn um helgar fram að jólum, lau–sun kl. 11–17, og á Þorláksmessu kl. 16–20. Íslenskt handverk, hönnun, matur og jólabar undir einu þaki.

Nánar á jolaportid.is.

Jólaportið – Jólamarkaður Kolaportsins

Jólaseðlar veitingastaðanna

Veitingastaðir miðborgarinnar eru komnir með jólaseðla fyrir hópa, vinnustaði og fjölskyldur. Meðal þeirra sem bjóða jólaseðil fram að jólum:

Bókaðu beint hjá staðnum – borðin fyllast hratt síðustu vikurnar fyrir jól.

Apótek og Fjallkonan í Hafnarstræti með jólaljósum
Jólasveinn á ferð við Apótek og Fjallkonuna á aðventunni.

Jólaljósin og verslanirnar

Hallgrímskirkja lýsir upp Skólavörðustíginn alla leið niður að höfn, Laugavegurinn er ein ljósakeðja og verslanir í Austurstræti, Bankastræti og við Hafnartorg eru með jólaopnun og lengri opnunartíma á aðventunni.

Jólagjafirnar, jóladressið og jólakaffið – allt á göngufæri.

Helgarferð í miðborgina

Gerðu helgi úr þessu: gisting í miðbænum, kvöldverður á jólaseðli, kokteill á leiðinni heim, verslunarferð á laugardegi og markaður á sunnudegi. Ný helgarferð alla föstudaga á Instagram og Facebook.


Alla dagskrá aðventunnar má finna á Jólin í miðborginni. Klæddu þig vel og komdu í bæinn – jólin gerast hér.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
Secret Link