5 hlutir til að gera í Miðborginni um helgina

Miðborgin skartar sínu fegursta í haustsólinni. Hér eru 5 tillögur af hlutum sem hægt er að gera um helgina.

Kítku í Bröns – Byrjaðu daginn með dásamlegum bröns á einum af flottu veitingastöðunum í miðborginni. Við mælum með að skoða nýja bröns hlaðborðið á Hnoss í Hörpunni.


Listagallerí og sýningar – Miðborgin státar af fjölmörgum listasöfnum og galleríum. Í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi verður opnun sýningarinnar:  Erró: 1001 nótt


Kaffihúsarölt – Skoðaðu falleg kaffihús, settu þig í hauststemningu með heitu kakói eða latte, og njóttu þess að fylgjast með lífinu í borginni. Upplifðu söguna og kíktu á nokkur af elstu kaffihúsum í miðborginni eins og Mokka Kaffi eða Prikið kaffihús.


Tjörnin og Þingholtin – Fáðu ferskt loft og taktu rölt um miðborgina til að skoða mannlífið, fuglalífið við tjörnina eða sögulegar byggingar um Þingholtin.


Búðarrrölt – Kíktu í búðarrrölt og skoðaðu allar þessar litlu hönnunar og sérverslanir í miðborginni.

🍂 Sjáumst á hauströltinu í Miðborginni.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.