Airwaves hátíðin er að hefjast og þúsundir erlendra gesta er á leið til landsins. Stemningin í miðborginni á þessari fjölsóttu hátíð er jafnan frábær.
Rekstraraðilar í miðborginni efna til Miðborgarvöku þar sem verslanir verða opnar til kl. 22:00 föstudaginn 1.nóvember og verður úr margs konar uppákomum og tilboðum að velja. Spáin er góð og líkur á að mikið fjölmenni verði í bænum þetta kvöld.
Miðborgarvakan verður studd skrautlegum heilsíðum, sjónvarps – , útvarps- og netauglýsingum.