Nýjasta jólavætturin Leiðindaskjóða mætti á listasafn Reykjavíkur snemma í morgun. Það var Jón Gnarr borgarstjóri sem tók á móti vættinni ásamt leikskólabörnum og öðrum gestum safnsins en þau sættust öll á eitt um að leggja öllum leiðindum sínum í desember henni til heiðurs. Vættar miðborgarinnar eru nú orðnar 11 talsins og mun Leiðindaskjóða prýða vegg Listasafnsins yfir jólin.