Iceland Airwaves hátíðin hefur aldrei verið fjölmennari en nú og hefur miðborgin iðað af lífi síðan í vikubyrjun. Dagskráin er með allra glæsilegasta móti , á áttunda tug erlendra hljómsveita og listamanna prýða dagskrána og vel á annað hundrað íslenskra. Sannkallaður búhnykkur og menningarauki fyrir miðborgina og samfélagið allt.