Wynwood Walls er heiti á æði sérstöku hverfi í borginni Miami á Florida. Þar hefur ljótleika, gömlum, skítugum veggjum og niðurníddum húsum verið breytt í gullfallegt útilistagallerí, að nokkru sambærilegt því sem við áttum í Hjartagarðinum á Hljómalindarreit á sínum tíma. Þó vandfundnir séu í dag sambærilegir staðir fyrir útigallerí í miðborg Reykjavíkur, mætti einnig hugsa sér svæði í iðnaðarhverfi eða á einhverjum stað sem bíður framkvæmda og uppbyggingar. Allar hugmyndir vel þegnar á : [email protected] Við eigum vissulega falleg vegglistaverk víðsvegar um borgina, m.a. nokkur glæsileg verk sem kostuð hafa verið á liðnum misserum í samstarfi Iceland Airwaves og Reykjavíkurborgar. Meðfylgjandi myndir frá Wynwood Walls segja meira en nokkur orð.