Listakonan Korkímon hefur opnað sína fyrstu einkasýningu í Gallerí Heima að Skólavörðustíg 12. Verk hennar eru afar áhugaverð og er full ástæða til að óska listakonunni ungu innilega til hamingju með þetta fljúgandi start á ferlinum. Jafnframt er áhugafólk um myndlist hvatt til að sækja þetta nýja gallerí heim og skoða þá áhugaverðu list sem þar er boðið upp á um þessar mundir.