17. júní í miðborginni

Hátíðardagskrá Reykjavíkurborgar

✨Á þjóðhátíðardaginn 17. júní fer fram hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík og að henni lokinni hefst hátíðardagskrá á Austurvelli.

Athöfnin verður með breyttu sniði í ár þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarpið sem allt fram til þessa hefur verið í höndum forsætisráðherra. Athöfnin á Austurvelli verður í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV og bein útvarpsútsending verður frá hátíðarguðsþjónustunni kl. 10.15.

Hljómskálagarður

🇮🇸 Við fögnum þjóðhátíðardegi Íslendinga með stórskemmtilegum hátíðarhöldum í Hljómskálagarðinum.

Skrúðganga fer frá Hallgrímskirkju kl 13:00 og að skrúðgöngunni lokinni taka við hátíðarhöld kl. 13:45 í Hljómskálagarðinum. 🇮🇸

💙Hljómskálagarðurinn verður stútfullur af allskyns skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Ókeypis aðgangur á alla dagskrárliði og í tæki.💙


Dagskrá á sviði:
🎤Systurnar Dóra Júlía og Helga Margrét eru skemmtistjórar á stóra sviðinu.🪩
13:45 Kynnar Dóra Júlía og Helga Margrét
13:50 Leikhópurinn Lotta
14:30 Dansskóli Birnu Björns
14:40 Lína Langsokkur
15:00 Gugusar
15:20 Dans World Class
15:30 Inspector Spacetime
16:10 Dans Brynju Péturs
16:30 Emmsjé Gauti
17:00 VÆB


🌿Víðsvegar um garðinn:
Hoppukastalar
Skátaþrautabraut
Klifurveggur
Matarvagnar Reykjavík Street Food


13:00-17:00 Krúserklúbburinn verður með glæsilega bílasýningu á Skothúsvegi
14:00-17:00 Reykjavik HEMA Club munu setja upp tvo velli til að skylmast á og leika listir sínar
14:30 Dans Afríka Iceland verður með trommuslátt og dans í garðinum.

Við hvetjum alla að koma og njóta í miðborginni, flestir veitingastaðir og verslanir verða opnar á 17. júní!

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.