Við fögnum sumrinu með stærsta pop-up fatamarkaði Regn til þessa☀️👚 Vel valdir aðilar munu selja elskuð föt í einum fallegasta sal landsins, Iðnó, á sjálfum þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, 17. júní.
🕚Húsið opnar á slaginu 11:00 og standa dyrnar opnar til kl. 17:00.
Um 30 ólíkir seljendur munu selja af sér spjarirnar og því tilvalið tækifæri að næla sér í einstaka gersemi á góðu verði🤝
Öll kaup fara í gegnum appið svo við mælum með næla sér í Regn hér: https://apps.apple.com/dk/app/regn/id1658308816 💧
Á næstu dögum deilum við broti af því sem verður til sölu á markaðnum svo fylgstu vel með🧡
Við hlökkum til að sjá ykkur!🎉