Fleiri ker, meiri gróður – minna rusl

Að fjölga ruslafötum var meðal þess sem íbúar í Miðborginni völdu og komst til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra.  Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.
Óskir íbúa í Miðborginni beindust einnig að bættu öryggi í umferðinni og umgengi:

  1. Sett var upp hundagerði í nágrenni við umferðarmiðstöðina
  2. Lífríki Tjarnarinnar var bætt með því að planta síkjamara.
  3. Gerðar voru breytingar á Njarðargötu sunnan Hringbrautar til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda yfir Njarðargötu við Sturlugötu.

4.       Ruslafötum var fjölgað á völdum stöðum í miðbænum.

5.       Tjarnarkanturinn var lagaður.  Steinhleðsla ásamt stétt var endurgerð.

6.       Gróður og ker á Lækjartorgi og umhverfi voru endurbætt.

7.       Biðsvæðaverkefni á torgi við Baldurs-, Nönnu- og Óðinsgötu.
Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Miðborginni var í fyrra um 19 milljónir króna og verður það óbreytt í ár.  Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.
Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 23. janúar kl. 17.

 

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.