Fjölmenni var á Restaurant Reykjavík í dag er fagnað var útgáfu ævisögu Hemma Gunn eftir Orra Pál Orrason. Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson, Þorgeir Ástvaldsson og fleiri komu fram auk þess sem rithöfundurinn sjálfur ávarpaði gesti. Börn Hemma voru á staðnum ásamt miklum fjölda vina og samferðamanna.