Stórviðburður verður á Austurvelli miðvikudaginn 10.desember kl. 17 þar sem margir af fremstu listamönnum landsins koma fram á Samstöðufundi um RÚV, en stofnuninni mun stefnt í veruleg vandræði með fyrirhugaðri lækkun á útvarpsgjaldi.
Fimmtudaginn 11. desember kl. 16:00 verður síðan Jólabærinn á Ingólfstorgi formlega opnaður af borgarstjóranum í Reykjavík, Degi B. Eggertssyni. Skondinn fjölbreytileiki verður í boði á sjálfri opnuninni, m.a. kórar, jólasveinar og geitur svo nokkuð sé nefnt.
Þá munu Bítur og þrjár raddir verða á ferðinni í miðborginni með tónleika á fjölmörgum stöðum um komandi helgi og sama gildir um fleiri tónlistarhópa. Allt ber því að sama brunni; Lífið og fjörið í miðborginni á sér engan líka á aðventunni sem nær hámarki á Þorláksmessukvöld er tenórarnir þrír stíga fram á Ingólfstorgi kl. 9:00.