Druslugangan er orðin að árlegum viðburði í Reykjavík og víðar og hefst hún í dag kl. 14.
Gengið er gegn kynferðisofbeldi og til að leggja áherslu á að standa þarf betur með þolendum – gegn gerendum, að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur.
Gengið er frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg og Bankastræti og endað við Austurvöll þar sem verða ræðuhöld og tónlistaratriði.