Götulokarnir á Þorláksmessu

❌Stór hluti Kvosarinnar, Laugavegar og nærliggjandi götum verður lokað fyrir akandi umferð á Þorláksmessu, 23. desember. Lokanirnar eru í samráði við Lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi frá klukkan 14.00 – 00.00. Sjá meðfylgjandi kort.

👁Aðeins verður hægt að komast út af svæðinu um eftirfarandi gatnamót:

  • Barónsstíg við Laugaveg
  • Þingholtsstræti við Bankastræti
  • Hverfisgötu við Ingólfsstræti
  • Hverfisgötu við Frakkastíg
  • Pósthússtræti við Hafnarstræti

☮️Friðargangan 2025

Friðargangan er venju samkvæmt á Þorláksmessu og má búast við töfum á umferð á gatnamótum Snorrabrautar og Laugavegar og Lækjargötu og Bankastrætis í tengslum við gönguna. Fólk safnast saman klukkan 17.45 á nýja Hlemmtorginu (á milli Hlemms og Snorrabrautar) og fer gangan af stað klukkan 18.00 og gengið sem leið liggur á Austurvöll þar sem fer fram stuttur fundur.

Lögreglan mun stöðva umferð á meðan að gangan fer yfir Snorrabraut og þegar gangan fer yfir Lækjargötu.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík