Jólaskreytingum í miðborginni er senn lokið og miðborgin er orðin gullfalleg sem aldrei fyrr. Það er skemmtilegt að hefja jólainnkaupin í svo notalegu umhverfi og veðurguðirnir hafa verið okkur afar hliðhollir að undanförnu.
Kl. 16:00 á sunnudag verður Oslóartréð tendrað við hátíðlega athöfn á Austurvelli og meðal listamanna sem koma fram af því tilefni eru söngvararnir Helgi Björnsson og Sigríður Thorlacius ásamt hljómsveit.