Lagðar hafa verið fram nýjar tillögur um framtíðarútlit Laugavegs og Óðinstorgs. Nokkrar þeirra hafa hlotið sérstakar viðurkenningar borgaryfirvalda.
Gert er ráð fyrir útimarkaði og afþreyingarsvæði á Óðinstorgi og að gangandi og hjólandi umferð verði gert hærra undir höfði en nú er á Laugavegi. Áhugasömum gefst kostur á að kynna sér tillögurnar í Ráðhúsinu yfir helgina þar sem þær munu hanga uppi.