Páskar nálgast og Langur laugardagur verður næst 11.apríl

25 mars, 2015 Fréttir

Langur laugardagur er jafnan fyrsti laugardagur hvers mánaðar með tilheyrandi auglýsingum og viðburðahaldi. Nú fellur 4.apríl, fyrsti laugardagur apríl á páskahelgi og verður því seinkað um viku hefðbundnum auglýsingum og viðburðahaldi – til 11.apríl sem verður þannig hinn Langi laugardagur aprílmánaðar.

Opnunartímar í miðborginni verða hjá fjölmörgum umrædda helgi á skírdag og annan í páskum sem um sunnudag væri að ræða, þ.e. þeir sem á annað borð hafa opið á sunnudögum gera það gjarnan milli 13:00 og 17:00. Flestir hyggja á lokun föstudaginn langa, venjulega laugardagsopnun til kl. 16:00 laugardaginn fyrir páska og lokun á páskadag. Gríðarlegur fjöldi erlendra ferðamanna er þó í borginni á þessum tíma og er ljóst að fjölmargar verslanir hyggjast nýta sér það um komandi páska.kjötsupa

Vinna með okkur

Vinna með okkur

Hafa Samband
Eða
Skrá mig í markaðsfélagið

Skrá mig í markaðsfélagið

Skrá fyrirtæki