Fasteignafélagið Reginn boðar til kynningarfundar í Kaldalóni í dag kl. 14:00 þar sem nýtt og glæsilegt verslunarstórhýsi félagsins í miðborginni verður kynnt til sögunnar, en fyrir liggur að verslunarrisinn H&M mun hefja starfsemi í húsinu um leið og það opnar.
Yfir stendur leit að þeim rekstraraðilum sem best eru taldir falla að þeirri starfsemi sem fyrirhuguð er í þessari glæsikringlu miðborgarinnar.
Kaldalón er á jarðhæð Hörpu og mun vísast fyllast fljótt. Því er talið ráðlegt að mæta tímanlega.