🍸 Stærsta kokteilahátíð Íslands, Reykjavík Cocktail Weekend verður að Reykjavík
Cocktail Week í fyrsta skiptið 2025! Hátíðin verður haldin 31. mars til 6. apríl.
Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu uppskeru hátíð
kokteilsins á Íslandi í samstarfi við alla helstu vínbirgja, veitingahús og bari
Reykjavíkur.
🍹 Á meðan á hátíðinni stendur verða sérstakir Reykjavík Cocktail Week kokteila
seðlar í boði á stöðunum sem taka þátt og verða þeir drykkir á sérstöku
tilboðsverði. Staðirnir munu bjóða upp á fjölda viðburða tengda hátíðinni sem
eru öllum opnir.
Stærsti viðburður hátíðarinnar, Reykjavík Cocktail Week Expo fer fram á
miðvikudaginn 2. apríl í Hörpu! Þar fer fram Íslandsmeistaramót barþjóna þar
sem leitin af besta barþjóni landsins hefst, ásamt vörukynningum allra helstu
vínbirgja landsins. Miðasala er hafin á tix.is
Komdu og skálaðu í miðborginni!