Setur skapandi greina var formlega opnað sl. fimmtudag 20.mars að viðstöddu fjölmenni. Nýsköpunarmiðstöð Íslands átti frumkvæði að opnuninni í samstarfi við Reykjavíkurborg og fleiri aðila en í dag hýsir setrið m.a. Útón – Útflutningsskrifstofu tónlistarinnar, Iceland Airwaves, Tónverkamiðstöð og aðra tónlistartengda aðila og von er á fleirum. Setrinu var fundinn staður við hæfi – í Möguleikhúsinu sem áður starfaði í umræddu rými sem er á jarðhæð eins glæstasta húss miðborgarinnar að Laugavegi 105. Húsið er hannað í art deco – funkis stíl og var á sínum tíma reist af Brunabótafélagi Íslands.