Skjól – Halla Birgisdóttir

Harbinger býður ykkur hjartanlega velkomin á opnun einkasýningar Höllu Birgisdóttir, Skjól, laugardaginn 5. nóvember kl. 16:00. Sýningin stendur til 27. nóvember, en opið er í Harbinger fimmtudag til sunnudags frá kl. 14:00 – 17:00 og einnig eftir samkomulagi.

Skjól getur verið af tvennum toga, annars vegar skjól sem griðastaður og hins vegar skjól sem felustaður.

( . . . )

Myndlist talar.
Sum myndlist segir mikið um listamanninn sjálfan, til dæmis hvaða lífsýn hann hefur og hvað vekur áhuga hans. Hvort við hlustum á það fer eftir því hvað myndlistarmaðurinn er áhugaverður.
Önnur myndlist leitar út fyrir sjáfa sig og vill koma pólitískum skilaboðum áleiðis til fjöldans, til dæmis um spillingu í stjórnmálum eða umhverfismál. Hvort sú myndlist nái áhuga manns fer gjarnan eftir því hvort skilaboðin staðfesti eigin sýn á þessi málefni eða ekki.
Svo er til myndlist sem talar hvorki um sjálfa sig né umhverfið í heild sinni. Þetta er myndlist sem á í einkasamtali við hvern og einn áhorfanda. Þannig er myndlistin hennar Höllu Birgisdóttur.

Halla Birgisdóttir býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2013 og hefur síðan þá tekið þátt í fjölmörgum samsýningum sem og haldið einkasýningar vítt um landið. Halla notar teikningar og texta til þess að skapa brotakennd frásagnarrými sem birtast áhorfendum ýmist sem innsetningar, bókverk, veggteikningar, textíl-teikningar og/eða kvik-teikningar. Hún kallar sig myndskáld.

Dagsetningar: Frá 7. nóvember til 27. nóvember.

Staðsetning: Harbinger, Freyjugata 1, 101 Reykjavík

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.