Hinsegin dagar gefa lífinu lit en þeir ná hámarki á laugardag þegar Gleðigangan fer frá BSÍ að Arnarhóli.Til að hámarka stemninguna eru rekstraraðilar hvattir til að skreyta hjá sér í öllum regnbogans litum. Hókus Pókus á Laugaveginum býður upp á fjölbreytta vöru til slíks og sama gildir um Partíbúðina í Skeifunni sem býður rekstraraðilum miðborgarinnar 20% afslátt fram á laugardag.