Verslunin SUIT opnar að Skólavörðustíg 6 í dag á slaginu kl: 15:00 með veitingum og tilheyrandi fögnuði. Merkið SUIT kemur frá frændum okkar Dönum og varan er þekkt fyrir fágaðan einfaldleika og tengsl við náttúruna í litavali og stíl.
Það eru þau Karítas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson sem hönnuðu búðina en eigendur eru Ása Ninna Pétursdóttir og Guðmundur Hallgrímsson.
20% afsláttur verður á öllum vörum í búðinni í dag og á morgun, en á morgun verður opið frá kl. 13:00 til 18:00.
Miðborgin okkar býður verslunina hjartanlega velkomna í miðborgina.