Vetrarhátíð 2014 var sett í Miðborginni í kvöld, í garði safns Einars Jónssonar. Þar hófst tilkomumikil ljósa og tónlistardýrð að viðstöddum Jóni Gnarr borgarstjóra sem setti hátíðina. Haldið var síðan í skipulagða ljósagöngu um borgina þar sem fleirri verk voru til sýnis. Borgin ljómar í ljósadýrð, litum og tónum en upplifun á samspili ljóss, borgar og myrkurs markaði upphaf Vetrarhátíðarinnar.