Sökum almennra lokana verslana og fjarvista fjölmargra var hinn hefðbundni Langi laugardagur fluttur aftur um eina viku frá 4.apríl til 11.apríl.
Lifandi tónlist og fjörugt mannlíf er einkenni Langra laugardaga í miðborginni og svo verður einnig að þessu sinni. Þekkt dragdrottnig frá Draghálsi mun þenja dragspil sitt milli kl. 14:00 og 17:00, gestum og gangandi til ánægju og yndisauka. Verlsanir eru opnar til kl. 17:00 og fjölmargar lengur, s.s. bókabúðir, hönnunar- og tískuverslanir af ýmsum toga auk veitingahúsanna sem flest eru opin fram eftir kvöldi og sum fram á morgun. Góða helgi!