Á Húrra n.k. laugardag koma fram þrír góðir vinir sem elska að rappa. Þeir eru allir búnir að rappa ótrúlega lengi og sagan segir að þeir nálgist tíu þúsund klukkutíma í æfingu þegar að því kemur að flæða og flówa. Vinirnir skiptast í kærustuparið Úlfur Úlfur og þriðja hjólið Emmsjé Gauta.
Enn meiri vinátta verður á svæðinu þetta kvöldið því Keli úr Agent Fresco ætlar að tromma með þeim og Bjössi vinur þeirra úr Grindavík ætlar að standa bakvið DJ græjurnar.
Húsið opnar kl. 21:00 og það kostar 2.000 kr. inn.
Gott er að mæta tímanlega. Láttu endilega sjá þig.
Dagsetning: Laug. 23. janúar.
Tími: 21:00