Fjölbreytt jóladagskrá á aðventunni í Jólaborginni
Sjá frétt og myndir á heimasíðu reykjavik.is: https://reykjavik.is/frettir/fjolbreytt-joladagskra-adventunni-i-jolaborginni
Aldrei hefur verið meira skreytt í Reykjavík fyrir hátíðarnar, en hana prýða nú yfir 500 þúsund ljósaperur og 50 kílómetrar af jólaseríum. Fjölbreytt dagskrá verður í boði í jólaborginni, á söfnum, í Elliðaárdalnum og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum alla aðventuna og ættu öll að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera.
Jólakötturinn er á sínum stað og nú hafa Grýla og Leppalúði bæst í hópinn í gróðurhúsinu við Lækjartorg. Oslóartréð á Austurvelli, sem á sér fastan sess í hugum borgarbúa, verður tendrað á sunnudag, og er ómissandi hluti af jólaborginni. Alltaf bætist eitthvað nýtt í jólaborgina og er fólk hvatt til að gera sér glaðan dag í borginni á aðventunni.
Tónlist, jólasveinar og annað fjör alla aðventuna
25 styrkjum var úthlutað úr viðburðapotti jólaborgarinnar til listafólks sem mun skemmta gestum og gangandi í miðborginni. Kórsöngur, harmonikkutónlist og lúðrablástur mun heyrast um miðborgina og sjá til þess að halda uppi jólastemningunni í miðborginni.
Jólasveinarnir verða á vappi og tröllið Tufti ásamt fjölskyldu munu bregða á leik allar helgar fram að jólum. Boðið verður upp á flesta viðburði um helgar og svo síðustu dagana fyrir jól.
Lalli töframaður verður með jólabingó fyrir öll í Tjarnarbíói sunnudaginn 1. desember klukkan 12:00. Boðið verður upp á töfrabrögð og skemmtun að hætti Lalla, piparkökur og endalausa gleði! Önnur sýning verður á ensku sama daga klukkan 13:30.
Jólamarkaður við Austurvöll
Austurvöllur er í hjarta jólaborgarinnar og hefur aldrei verið fallegri. Um 10 kílómetrar af ljósaseríum prýða nú gróðurinn við torgið og starfsfólk borgarinnar hefur búið til skemmtileg ljósagöng á hvorum enda þess. Einnig er búið að koma fyrir glæsilegum jólakrans þar sem tilvalið er að taka hátíðlegar myndir. Í fyrsta sinn er boðið upp ájólamarkað við Austurvöll og munu söluaðilar bjóða upp á fjölbreytt úrval af smávöru og spennandi jólavörum.
Jólamarkaðurinn opnar laugardaginn 30. nóvember klukkan 13:00 .
Sérstök dagskrá verður við opnun markaðarins á laugardag þar sem Páll Óskar mun koma fram ásamt kvennakór Háskóla Íslands, Harmonikkusystrum og Jóla-Tufti verður á staðnum. Öll velkomin!
Markaðurinn verður opinn allar helgar í desember og dagana 19. – 23. desember.
Jólavættaleikur
Jólavættaleikurinn hefst 5. desember og verða þá allar jólavættirnar búnar að koma sér fyrir á húsveggjum víðs vegar um miðborgina.
Leikurinn hefur notið vinsælda meðal gesta borgarinnar sem skemmta sér við að þræða götur og torg í leitinni að jólavættunum og fylla inn á jolavaettir.borginokkar.is. Leikurinn stendur til 19. desember og verða vegleg verðlaun dregin út úr innsendum réttum svörum.
Jólaskógur
Jólaskógur Ráðhússins verður opnaður 6. desember.
Kateřina Blahutová upplifunarhönnuður mun umbreyta Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í ævintýralegan jólaskóg. Þar verður auðvelt að komast í jólaskap enda grenilyktin allsráðandi í skrautlegu jólaumhverfi. Jólaskógurinn er opinn virka daga frá klukkan 8-18, á laugardögum frá klukkan 10–18 og á sunnudögum frá 12–18.
Skautaðu inn jólin!
Stuðsvell Nova og Orkusölunnar er á sínum stað á Ingólfstorgi eins og fyrri ár og hefur aldrei verið glæsilegra.
Það er fátt jólalegra en að skemmta sér á skautum og svo er hægt að gæða sér á heitu kakói á milli ferða.
Jólasmiðja í Listasafni Reykjavíkur
Leikum að list er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur sunnudaginn 1. desember klukkan 13:00 – 15:00.
Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt fjölskyldu sinni til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður. Fjölbreyttur efniviður í boði undir leiðsögn kennara í huggulegu og jólalegu andrúmslofti.
Jólamarkaður Saman verður í porti Listasafns Reykjavíkur laugardaginn 30.nóvember. Hönnuðir,myndlistamenn, matgæðingar, rithöfundar, teiknarar og tónlistarfólk koma nú saman á skemmtilegum markaði þar sem ógrynni af fallegum vörum, drykkjum, matvöru og listaverkum af ýmsum toga verður til sölu fyrir jólin.