Kveikt á Oslóartrénu á sunnudag

Ljósin á Oslóartrénu verða tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli sunnudaginn 29. nóvember kl. 16, fyrsta sunnudag í aðventu. Tónlist, söngur, tröll og jólasveinar setja svip á Austurvöll og öll eru velkomin.

Dagskrá

  • Kl. 15:30 – Lúðrasveit Reykjavíkur leikur aðventu- og jólalög.
  • Tufti og tröllabörnin kíkja á Austurvöll og gleðja gesti.
  • Ragnheiður Gröndal og Króli syngja jólalög með hljómsveit.
  • Anna Dåsnes, borgarfulltrúi í Osló, flytur kveðju frá Oslóarborg og afhendir norskar barnabækur í íslenskri þýðingu sem fara á skólabókasöfn grunnskóla í Reykjavík.
  • Hildur Björnsdóttir borgarstjóri þakkar fyrir gjöfina og hin norsk-íslenska Idunn Anda hjálpar til við að kveikja ljósin kl. 16.
  • Jólasveinarnir mæta í bæinn, syngja og skemmta krökkunum.

Kynnir er Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona og dagskráin er túlkuð á táknmáli.

Tréð er gjöf frá Oslóarborg og var fellt í Heiðmörk fyrr í mánuðinum. Það er rúmlega 12 metra hátt sitkagreni, skreytt 20.000 ljósum, 120 gylltum jólakúlum og jólastjörnu á toppnum.

Verslanir og veitingastaðir miðborgarinnar taka vel á móti gestum fyrir og eftir athöfnina. Kynntu þér jólin í miðborginni.

Heimild: Reykjavíkurborg.

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
Secret Link