Fjör á Hverfisgötufagnaði

 

 

 

 

Margt var um manninn við opnun Hverfisgötunnar í gær á Löngum laugardegi, 1.mars. Gatan hefur verið illaðgengileg mánuðum saman á meðan framkvæmdir hafa átt sér stað; öllu lagnakerfi skipt út og endurhönnuð umgjörð götunnar , m.a. með tilkomu hjólastíga. FRamkvæmt var á kaflanum frá Vitastíg að Klapparstíg en verklok drógust um 3.5 mánuði sökum ýmiss konar ófyrirséðra flækjustiga sem ekki komu í ljós fyrr en gatan var “skorin upp”.

Sirkuslistamenn, Lúðrasveit Samma, Eiríkur Fjalar , plötusnúðar, matur frá Austur-Indíafélaginu,  fornbílasýning, ávörp borgarstjóra og formanns borgarráðs gerðu sitt til að setja skemmtilegan svip á opnunina sem þótti takast hið besta.

IMG_6274IMG_6280IMG_6308

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.