Horft frá brúnni í Þjóðleikhúsinu

Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar, um forboðnar ástir, svik og frelsisþrána Horft frá brúnni er eitt magnaðasta leikrit 20. aldarinnar. Áhrifamikil saga um örlög alþýðufólks í hafnarhverfi í New York, verk um forboðnar ástir, svik og leitina að frelsi í landi tækifæranna. Hafnarverkamaðurinn Eddie Carbone og Beatrice eiginkona hans hafa gengið Katrínu, systurdóttur Beatrice, í foreldrastað. Fjölskyldan skýtur skjólhúsi yfir tvo unga menn frá Sikiley, ólöglega innflytjendur, og Katrín verður fljótt ástfanginn af yngri manninum. Eddie hefur ávallt lagt sig fram um að vernda fósturdóttur sína og tekur þá afdrifaríku ákvörðun að skilja elskendurna ungu að. Leikstjóri sýningarinnar, Stefan Metz, hefur starfað í virtum leikhúsum víða um Evrópu en nýverið setti hann upp rómaða sýningu á Eldrauninni eftir Arthur Miller hér í Þjóðleikhúsinu.

Sýningartímar eru frá: 13. október til 20. nóvember frá kl. 19:30

Staðsetning: Þjóðleikhúsið, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík

Sími: 551-1200

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.